10.03.1986
Neðri deild: 60. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3027 í B-deild Alþingistíðinda. (2573)
321. mál, tollskrá
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Ég tel að með þessu frv. sé ríkisstj. að reyna að leiðrétta klúður sem hún ber auðvitað ábyrgð á. Eins og málið lá fyrir í upphafi var það ekki fullnægjandi og þess vegna hefur orðið að koma með þetta mál aftur. Ég mun fyrir mitt leyti taka sömu afstöðu og hv. þm. Ragnar Arnalds í Ed. og skrifa undir nál., þegar þar að kemur, með fyrirvara.
Ég held að aðalatriði þessa máls sé að átta sig á því að þau vísitöluáhrif sem hér um ræðir og mestu skipta fyrir launafólk í landinu eru áhrifin á lánskjaravísitölu. Áhrifin á lánskjaravísitölu eru þau að hækkun hennar er þessum mun minni en ella sem skiptir auðvitað meira máli fyrir launamenn í landinu en verð á dýrum bílum.
Ég vildi hins vegar spyrja hæstv. fjmrh., úr því að þessi mál eru hér á annað borð á dagskrá, um tvennt: 1. Hvað er að frétta af stríði ríkisstj. við bankana?
Ætla bankarnir að bíða eins og rætt var hér fyrir nokkrum dögum varðandi þjónustugjöld bankanna? 2. Hvernig hyggst ríkisstj. standa að framkvæmd húsnæðismálaákvæðis kjarasamninganna sem er einn meginhornsteinn þeirra kjarasamninga sem gerðir voru fyrir nokkrum dögum? Ljóst er að þar þarf, ef framkvæma á þetta ákvæði, að breyta ýmsum atriðum í lögum. Ég inni hæstv. fjmrh. eftir því hvernig sú vinna stendur og hvort það er ekki ljóst í huga ríkisstj. að afgreiðsla á húsnæðismálunum verður að fara fram á þessu þingi vegna þess að kerfisbreytingin á að taka gildi 1. sept. n.k.