11.03.1986
Sameinað þing: 57. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3052 í B-deild Alþingistíðinda. (2616)
310. mál, störf milliþinganefndar um húsnæðismál
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Ég þakka hv. 3. landsk. þm. fyrir þær upplýsingar sem hún hefur dregið fram frá hæstv. félmrh. um húsnæðismál og teldi ástæðu til þess að í framhaldi af þessum umræðum færu fram ítarlegar umræður um húsnæðismál og m.a. það hvernig ríkisstj. hefur verið flengd til að taka á þessum málum af ýmsum aðilum, bæði stjórnarandstöðunni og loks aðilum vinnumarkaðarins í framhaldi af kjarasamningunum.
En það sem fékk mig til að koma upp núna, herra forseti, var fyrst og fremst það að mér fannst nokkuð sérkennilegt hjá hæstv. ráðh. ef hann hugsar sér að nýta ekki þá vinnu sem unnin hefur verið fyrir milliþinganefndina í tengslum við útfærslu á því samkomulagi sem aðilar vinnumarkaðarins hafa gert. Það er alveg augljóst mál að á vegum milliþinganefndarinnar liggur fyrir þegar geysilega mikil vinna og upplýsingasöfnun sem hlýtur að koma til nota við útfærslu á samkomulagi aðila vinnumarkaðarins. Ég held að ef menn höggva alveg á vinnu milliþinganefndarinnar hefði það óhjákvæmilega í för með sér að hin nýja nefnd, á vegum hvaða ráðuneytis sem hún kann að verða, mundi vinna sömu hlutina og milliþinganefndin hefur þegar látið gera. Ég vil af þessu tilfelli skora á hæstv. ráðh. að reyna að tengja þessa vinnu saman eins og kostur er þannig að þarna verði ekki um margverknað að ræða.
Ég vil einnig í tilefni af þessum umræðum óska eftir því að hæstv. ráðh. svari því: Hvenær hefur ríkisstj. hugsað sér að koma með frv. um útfærslu á samkomulagi aðila vinnumarkaðarins hingað á þingið? Það verður að koma hér hið allra fyrsta. Það verður að vinna í þessu máli dagfari, náttfari vegna þess að gert er ráð fyrir því að þetta nýja samkomulag taki gildi 1. september. Þá fyrst geta menn orðið bjartsýnir með sann þegar niðurstaðan af þeirri vinnu liggur fyrir á hv. Alþingi.