12.03.1986
Sameinað þing: 59. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3077 í B-deild Alþingistíðinda. (2652)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Birgir Ísl. Gunnarsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur tekið til athugunar kjörbréf Jóhönnu Leópoldsdóttur sem er 2. varamaður Alþb. í Vesturlandskjördæmi. Jafnframt liggur hér fyrir skeyti frá 1. varamanni Alþb. í þessu kjördæmi, Jóhanni Ársælssyni, þar sem hann tilkynnir að hann geti vegna anna ekki tekið sæti sem varamaður Skúla Alexanderssonar.

Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréfið og gerir engar athugasemdir við það og mælir með því að það verði samþykkt.