17.03.1986
Efri deild: 62. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3121 í B-deild Alþingistíðinda. (2684)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Þannig háttar til hér að annar skrifari hefur fjarvistarleyfi næstu vikur, hv. 4. þm. Vesturl. Skúli Alexandersson, og ekki er til sæti handa varamanni hans öðruvísi en við fáum skrifara í hans stað. Ég vil því biðja hv. 6. landsk. þm. að gegna skrifarastörfum svo að hv. varamaður Skúla Alexanderssonar, Jóhanna Leópoldsdóttir, geti fengið sæti hér í deildinni.

Mér hafa borist eftirfarandi bréf, dags. 17. mars 1986:

„Þar sem ég verð fjarverandi af einkaástæðum á næstunni og get því ekki sótt þingfundi leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Sjálfstfl. í Norðurlandskjördæmi eystra, Vigfús Jónsson, Laxamýri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Björn Dagbjartsson,

5. þm. Norðurl. e.“

Vigfús Jónsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og því hefur kjörbréf hans verið rannsakað. Er hann nú boðinn velkominn til starfa.