17.03.1986
Sameinað þing: 61. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3174 í B-deild Alþingistíðinda. (2769)

318. mál, endurskoðun laga um fasteignarsölu

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Ég fékk heimildir beggja þingflokka stjórnarflokkanna til þess að leggja þetta frv. fram án nokkurra fyrirvara eða athugasemda. Þegar frumvarp hefur verið lagt fram á Alþingi er það að sjálfsögðu, eins og hv. þm. vita, mjög á valdi viðkomandi nefnda og forseta hversu framgangurinn verður. En ég óska eftir því að þetta frv. verði afgreitt sem fyrst og verði að lögum.