17.03.1986
Sameinað þing: 61. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3175 í B-deild Alþingistíðinda. (2772)

326. mál, framleiðsla bæti- og matarefna úr mjólk

Jóhanna Leópoldsdóttir:

Herra forseti. Ég fagna fram kominni fsp. um nýtingu mjólkur í matvælaiðnaði, en ég tek það fram að ég mun fylgja þessari fsp. eftir þar sem mér finnst nokkurrar uppgjafar og svartsýni gæta í þessum málum. Ég mun mæla fyrir þáltill. um nýtingu mjólkur í matvælaiðnaði á næstu dögum og koma þá fram með þær röksemdir sem ég hef aflað mér að undanförnu.