17.03.1986
Sameinað þing: 61. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3175 í B-deild Alþingistíðinda. (2774)

326. mál, framleiðsla bæti- og matarefna úr mjólk

Iðnrh. (Albert Guðmundsson):

Hæstv. forseti. Vegna fsp. til mín frá hv. síðasta ræðumanni vil ég geta þess að hv. þm. Jóhanna Leópoldsdóttir hefur þegar aflað upplýsinga frá Iðntæknistofnun og ég veit hvaða upplýsingar hún hefur fengið. Ég geri ráð fyrir að hún vitni til þeirra þegar hún flytur sína þáltill. þannig að ég mun ekki rekja það hér, enda ekki undir það búinn. En Iðntæknistofnun hefur kannað þessi mál.