17.03.1986
Sameinað þing: 62. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3179 í B-deild Alþingistíðinda. (2784)
Iðgjöld bifreiðatrygginga
Samgrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Út af orðum hv. 2. landsk. þm., sem hún beindi til mín, get ég ekki á þessari stundu svarað því hvort ég tel eðlilegt að tryggingaiðgjöld verði felld undir lögin um verðlag og viðskiptahætti því að þau byggjast á því að þetta heyrir undir trmrn. og á grundvelli laga um vátryggingastarfsemi er til tryggingaeftirlit sem átti að tryggja hag neytenda og fara yfir þau gögn þannig að í fáum tilfellum gerir löggjafinn ráð fyrir því að vandað sé betur til verðlagningar en á þessum sviðum. Tryggingaeftirlitinu ber lögum samkvæmt að fara mjög náið yfir þetta og vera trmrn. til ráðuneytis.
Efnislega vil ég ekki svara neinu fyrir hönd trmrh. , en það er ljóst að trmrh. mun fá þau orð sem hér hafa verið viðhöfð varðandi þá ákvörðun um að hækka iðgjöld bifreiðatrygginga. Hitt má svo telja íhugunarvert hvort það er rétt og hvort það á lengur að viðgangast að tryggingafélögin hafi samráð um breytingu á sínum tekjum og sínum iðgjöldum. Alveg eins og það er bannað í nýjum lögum um viðskiptabanka að þeir hafi samráð sín á milli tel ég ekki síður ástæðu til þess að þar verði sú breyting gerð á.
Ég vil svo að síðustu þakka hv. 7. þm. Reykv. fyrir mjög hlý orð í minn garð og sömuleiðis vil ég ekki láta hjá líða að segja það hér að ég fyrir mitt leyti er staðráðinn í því að framfylgja þeirri stefnu, sem mörkuð var með síðustu kjarasamningum, eins og frekast er unnt þannig að almenningur í landinu getur reitt sig á að það hafi verið alvara á báða bóga að koma þessum samningum á og þeirri gjörbreytingu sem þessum samningum er ætlað að hafa á verðlag og efnahagsmál þessarar þjóðar.