24.03.1986
Efri deild: 64. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3257 í B-deild Alþingistíðinda. (2848)

91. mál, varnir gegn kynsjúkdómum

Frsm. meiri hl. (Davíð Aðalsteinsson):

Hæstv. forseti. Eins og hv. deildarmenn rekur minni til var alllöng umfjöllun um þetta mál í heilbr.- og trn. þessarar hv. deildar fyrir jól. Eins og fram kemur á þskj. var gerð breyting á þessu frv. í Nd., þ.e. skráningarákvæðum um þá sem smitaðir eru af kynsjúkdómum. Ég hef átt óformlegar viðræður við nefndarmenn um þær breytingar sem gerðar voru í Nd. Að því er næst verður komist eru engar athugasemdir af hálfu nefndarmanna í heilbr.- og trn. Ed. vegna þeirra breytinga sem gerðar voru í Nd. og legg ég því til fyrir hönd nefndarinnar að deildin afgreiði frv. eins og það kom frá Nd.