24.03.1986
Efri deild: 64. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3269 í B-deild Alþingistíðinda. (2857)
339. mál, sjóðir atvinnuveganna
Landbrh. (Jón Helgason):
Herra forseti. Mál það sem hv. 11. landsk. þm. vék að hér síðast mun síðar verða til umræðu hér í deildinni ef það verður afgreitt frá hv. Nd., sem ég þori ekkert að segja um, og þá verður að sjálfsögðu tóm til þess að ræða það og fjalla ítarlega um það af hv. landbn.
En ástæðan fyrir því að ég kvaddi mér hljóðs var misskilningur sem kom fram í máli hv. 2. þm. Austurl. um að bændur greiddu alfarið núna forfallaþjónustuna. En eins og fram kom hér í umræðu í vetur þegar það mál var til meðferðar þá skal það greitt af hluta þess gjalds, sem bændur hafa greitt af launum sínum til Stofnlánadeildar, og þá mundi það gjald lækka sem nemur kostnaði við forfalla- og afleysingaþjónustuna. Þetta hefur verið tekið til greina við verðlagningu búvara 1. mars, þar sem þá kom álag á launalið bóndans til að mæta þessu og þar með að nokkru leyti til þess að koma til móts við það sjónarmið, sem hv. 11. landsk. þm. vék hér að, að vilja draga úr þessu gjaldi a.m.k.