24.03.1986
Neðri deild: 68. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3285 í B-deild Alþingistíðinda. (2886)
372. mál, vinnudeila Mjólkurfræðingafélags Íslands
Frsm. meiri hl. (Stefán Valgeirsson):
Herra forseti. Á þskj. 678 er nál. frá meiri hl. landbn. Þar kemur fram að á fund nefndarinnar kom sáttasemjari ríkisins, Guðlaugur Þorvaldsson, enn fremur Þórarinn Þórarinsson frá Vinnuveitendasambandi Íslands og Hjörtur Eiríksson frá Vinnumálasambandi samvinnufélaganna. Enn fremur komu á fund nefndarinnar fimm fulltrúar frá Mjólkurfræðingafélaginu, m.a. formaður þess, Geir Jónsson. Það voru lagðar ýmsar spurningar fyrir þessa gesti nefndarinnar, m.a. sú spurning hvernig staðan væri metin eftir fundinn í dag hjá samningsaðilum, og kom það í ljós, sem raunar var sagt í hv. deild í dag, að það sem bar fyrst og fremst á milli var fæðis- og flutningagjald sem mundi vega um 4-5% ef fallist hefði verið á þessa kröfu.
Spurt var um það, ef á þetta hefði verið fallist, hvernig t.d. þeir Hjörtur og Þórarinn eða þeir aðilar sem þeir eru umbjóðendur fyrir hefðu litið á það. Þeir svöruðu því á þann veg að þeir litu þannig á að þá mundi það samkomulag sem gert var í kjarasamningum síðast vera brostið. Hins vegar litu mjólkurfræðingarnir öðruvísi á þetta mál og sögðu að ýmsir aðilar, sem væru með hliðstæða menntun og hliðstæð réttindi, hefðu fengið þessa prósentu í samningum áður fyrir flutninga og fæði og a.m.k. sums staðar væri um þetta samið. En þegar sú spurning var borin fram við mjólkurfræðingana hvort þeir mundu vilja fresta verkfalli um t.d. hálfan mánuð og reyna að semja svaraði formaður þeirra neitandi.
Ég held að það hafi ekki farið fram hjá nefndarmönnum að það var ekki von á því að samningar mundu takast og það var mat a.m.k. meiri hl. að ef orðið væri við þessari kröfu mjólkurfræðinganna mundi verða erfitt að semja við alla þá sem eiga eftir að semja, jafnvel þó að það stangist á fullyrðing gegn fullyrðingu um hvort þar með væri það samkomulag, sem gert var á vinnumarkaðnum, úr sögunni eða a.m.k. brostið að verulegu leyti. Þar sem ástandið er þannig, jafnvel þó að allir hv. þm. geri það ekki með glöðu geði að setja lög þegar um vinnudeilur er að ræða, verður auðvitað að reyna að gera allt það sem í valdi þingsins er og raunar þjóðarinnar til að það samkomulag sem gert var verði haldið að öllu leyti. Miðað við þær umræður sem hafa farið fram hér í þinginu um önnur atriði mætti a.m.k. ætla að með því að verða við þessu væri samkomulagið brostið.
Meiri hl. nefndarinnar mælir með því að frv. verði samþykkt óbreytt. Undir þetta skrifa ásamt mér hv. þm. Þórarinn Sigurjónsson, Pálmi Jónsson, Eggert Haukdal og Halldór Blöndal.