24.03.1986
Efri deild: 65. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3299 í B-deild Alþingistíðinda. (2899)

372. mál, vinnudeila Mjólkurfræðingafélags Íslands

Stefán Benediktsson:

Frú forseti. Alþingi Íslendinga er ekkert stundarfyrirbæri í íslensku þjóðlífi. Ég tel að það sé langt fyrir neðan þess virðingu að vera að eltast við mál af þessu tagi og tel að réttast væri að forða þeirri hneisu með því að taka þetta mál ekki hér á dagskrá. Því segi ég nei.