25.03.1986
Sameinað þing: 64. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3317 í B-deild Alþingistíðinda. (2927)
283. mál, sláturhús á Fagurhólsmýri
Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Af tilefni orða hv. þm. Egils Jónssonar áðan vil ég benda á að Alþingi hefur ályktað um þessi efni með þeim hætti sem ég rakti og einnig að hér er um að ræða þætti sem snerta marga fleiri en rekstraraðila þessa sláturhúss, t.d. sauðfjárveikivarnaþáttinn sem ég hef einnig vakið athygli á í þessari umræðu. Það eru þannig fleiri en sláturleyfishafinn einn sem málið varðar og það er nauðsynlegt að afstaða yfirvalda, stjórnvalda, liggi fyrir um þann þátt áður en heildarniðurstaða og heildarstefna er tekin í málinu.