25.03.1986
Sameinað þing: 64. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3324 í B-deild Alþingistíðinda. (2941)
324. mál, hringrot í kartöflum
Landbrh. (Jón Helgason):
Herra forseti. Ég vil taka undir með hv. 3. þm. Norðurl. e. að það er mikilvægt að reyna að gera allt sem hægt er til að koma í veg fyrir að þessi sjúkdómur breiðist út til fleiri staða en þegar er orðið. Sérfræðingur okkar er að athuga það og rannsaka, eftir því sem honum vinnst tími til, hver útbreiðslan er. Fyrr en það liggur ljóst fyrir er kannske erfitt að afmarka það. En að sjálfsögðu er mikilvægast af öllu að koma í veg fyrir að hringrot berist í Eyjafjörð þar sem stofnræktun fer fram. Hins vegar hefur sérfræðingurinn talið að það væri ákaflega erfitt að banna allan flutning á pökkuðum matarkartöflum milli staða á meðan ekki liggur fyrir hvar veikin er og hvar ekki, en það þurfi, eins og kom fram í svari hans, að huga fyrst og fremst að útsæðinu. En ég er viss um að Sigurgeir Ólafsson mun gera allt sem í hans valdi stendur til þess að kynna sér ástandið sem allra best og gera síðan þær tillögur sem hann telur að komi best að gagni.