01.04.1986
Sameinað þing: 66. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3353 í B-deild Alþingistíðinda. (2980)
309. mál, vandi vegna misgengis launa og lánskjara
Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):
Herra forseti. Ég verð að segja að ég hef orðið fyrir miklum vonbrigðum með svör beggja hæstv. ráðherra sem hér hafa komið í stólinn og ekki síður hef ég orðið fyrir vonbrigðum með siðferðisþrek þeirra. Þær aðgerðir sem þeir nefna hafa í flestum tilvikum alls ekki dugað. Ef hæstv. fjmrh. hefði verið hér um daginn þegar hinum tveimur fsp. var svarað hefði hann komist að raun um að það eru nær 30% þeirra sem nú leita til ráðgjafarþjónustunnar sem líka leituðu þangað í fyrra vegna þess að úrræðin eru ekki nógu góð. Þessi úrræði, sem ætlað er að bjarga mönnum fyrir horn, bæta í engu það tjón sem mönnum hefur verið skapað af ráðstöfun þessarar ríkisstj. Ég hef leyft mér að láta dreifa hér afriti af skattskýrslu sem mér var færð. Það var grandvar, heiðarlegur maður sem hefur gert nákvæmlega það sem til stóð og hann hefur tapað nærri milljón. Hann stendur eftir nærri eignalaus maður. Hann bað mig að dreifa þessu. Og ég veit hvað ég er að tala um. Ég veit hvaða árabil um er að ræða. Ég hef líka borið fram ítarlega skriflega fsp. og ég veit það af samtali við þá sem sinna vandræðum fólks að þetta er einkum tímabilið 1981, 1982 og 1983. Það fólk er langverst leikið þó að tímabilið sé örlítið lengra. Ég vil biðja hæstv. fjmrh. að kynna sér þetta. Ég vænti þess að fá þetta skriflega svar sem fyrst.
Hæstv. fjmrh. talar um jöfnuð. Vill hann meina að þessum litla hópi húsnæðisbyggjenda og -kaupenda sé ætlað að bæta fyrir syndir fyrrv. ríkisstj.? Hvað meinar ráðherrann? Og hvers konar jöfnuður er það í stjórnarstefnu sem skipar fjórðu hverri fjölskyldu undir fátækramörk? Nei. Það er ekki stór sá hópur sem hér er um að ræða og hv. 3. þm. Reykn. gat um áðan og hann hefur algera sérstöðu meðal húsbyggjenda og íbúðakaupenda þeirra sem byggðu fyrir 8. áratuginn og þeirra sem munu byggja í framtíðinni. Þessi hópur hefur verið klemmdur milli stafs og hurðar með efnahagsráðstöfun þessarar ríkisstj. Hann er lítill þegar miðað er við alla þá sem aflað hafa sér húsnæðis á Íslandi og hann er lítill þegar um er að ræða að leysa úr þeim vandræðum sem honum hafa verið búin.
Hins vegar er hann stór ef sniðganga á hann og ef ríkisstj. ætlar sér að gleyma honum. Þessari synd kastar ríkisstj. ekki á bak við sig. Mér er til stórrar undrunar ef menn hafa svo lélegt pólitískt þefskyn að gera sér ekki grein fyrir því hve margir tengjast þeim að skyldleika, vináttu eða kunningjaböndum sem nú eru illa staddir vegna húsnæðismála og vita í raun hver örlög þeirra eru og hver er að dæma þeim þessi örlög. Þessi hópur allur skiptir að mínu mati nokkrum tugum þúsunda. Og ég bara velti því fyrir mér: Ætlar þessi ríkisstj. í pólitískt frí eftir næstu kosningar?