01.04.1986
Sameinað þing: 66. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3357 í B-deild Alþingistíðinda. (2992)
334. mál, fæðingarorlof
Fyrirspyrjandi (Þórarinn Sigurjónsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans, en ekki þóttu mér þau vera nægilega góð. Ég verð að segja það. Ég hefði viljað að þessu máli hefði verið lengra komið, en það er þó skárra en ekki að það er verið að skipa nefnd og undirbúa könnun á því hvernig þetta geti farið fram.
Ég vil minna á í þessu sambandi, af því að hv. 2. þm. Austurl. minntist á þetta mál í þeim dúr að Framsfl. hefði ekki gert mikið í því að þrýsta á það, að þál. sem var samþykkt á þinginu 1979 gerði m.a. ráð fyrir að endurskoðaður yrði sá þáttur í almannatryggingalögunum sem fjallar um fæðingarorlof og var gert ráð fyrir að almannatryggingar greiði fæðingarorlof til allra fæðandi kvenna í landinu hvort sem þær eru útivinnandi eða við heimilisstörf. Ég veit ekki betur en þessi þál. hafi verið samþykkt í þessum sal af Sþ. Síðan voru Alþýðubandalagsmenn í stjórn í nokkur ár. (Gripið fram í: Ekki framsókn?) Jú, ásamt framsóknarmönnum. Ég er ekkert að neita því. En það var ekki hvatt til þess af Alþýðubandalagsmönnum að lagfæra þetta frekar. Ég held því að það hafi tekið meira en þrjú ár að koma þessu í gegnum þingið. Ég ætla ekki að ræða það frekar, en bendi á þetta út af frammíkalli.
Þetta hefur dregist. Það þykir mér slæmt. Ég vona að á því verði breyting og það liggi fyrir í byrjun næsta þings hvernig málum verði hagað. Eins og ég sagði í minni fyrri ræðu vonast ég til að allar konur fái sama fæðingarorlof, hvort sem þær eru heimavinnandi eða útivinnandi, vegna þess að það þarf fyrst og fremst að jafna kjör allra kvenna sem fæða hvort sem þær vinna úti eða að heimilisstörfum. Það legg ég mest kapp á.