07.04.1986
Efri deild: 70. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3469 í B-deild Alþingistíðinda. (3100)

272. mál, ríkisendurskoðun

Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Hæstv. forseti. Hv. fjh.- og viðskn. hefur rætt þetta mál á nokkrum fundum og mælir nefndin öll með samþykkt frv., en einstakir nefndarmenn áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja brtt. Stefán Benediktsson fylgdist með störfum í nefndinni og er samþykkur þessu nál.

Ég hygg að hv. þm. hafi kynnt sér málið þannig að ég er ekki að rekja það. Það var sýnt hér í fyrra, en þá í annarri mynd og ekki náðist samkomulag um að hrinda því fram í þeirri mynd. En miðað við þetta frv. eru allir hv. nefndarmenn sammála um að mæla með samþykkt þess.