07.04.1986
Efri deild: 70. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3476 í B-deild Alþingistíðinda. (3116)

273. mál, þjóðfundur um nýja stjórnarskrá

Flm. (Stefán Benediktsson):

Frú forseti. Þetta mál, sem hér um ræðir, er flutt í annað sinn, var flutt á síðasta þingi. Það kom að vísu í þetta sinn ekki fram fyrr en eftir áramót og af ýmsum orsökum, sem ekki varð e.t.v. ráðið við, hefur dregist að framsaga fari fram fyrir málinu. Þar sem sýnt er að stutt er til þingloka og með öllu útilokað að þetta mál fái tilhlýðilega meðferð, hvað þá heldur afgreiðslu, dreg ég málið til baka og æski þess að það verði þar með tekið út af dagskrá.