08.04.1986
Sameinað þing: 69. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3513 í B-deild Alþingistíðinda. (3156)

328. mál, öryrkjabifreiðar

Fyrirspyrjandi (Helgi Seljan):

Herra forseti. Ég skil hæstv. fjmrh. svo að lögum samkvæmt sé útilokað að hafa þetta öðruvísi. Það er þá alveg ljóst að til þess að rétta hlut öryrkja þarf að breyta lögum þeim sem nú gilda varðandi eftirgjöf af bílum til þeirra sérstaklega. Það er þá þess að vænta að það verði gert.