08.04.1986
Sameinað þing: 69. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3514 í B-deild Alþingistíðinda. (3158)
381. mál, umsvif erlendra sendiráða
Utanrrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Með hvaða hætti hefur verið staðið að framkvæmd þál. frá 13. maí um takmörkun á umsvifum erlendra sendiráða hér á landi? er spurt af hv. 2. þm. Reykn.
Í þál. um takmörkun á umsvifum erlendra sendiráða, sem samþykkt var á Alþingi nefndan dag, er utanrrh. falið að fylgjast með því að umsvif erlendra sendiráða séu jafnan innan hæfilegra marka og gera, ef þörf krefur, ráðstafanir í því skyni. Í samræmi við þessa ályktun Alþingis hefur farið fram athugun í utanrrn. á því á hvern hátt tilgangi þál. verði best náð og er þeirri athugun ekki lokið. Þegar ráðuneytið hefur gert sér endanlega grein fyrir hvernig best verði að þessu staðið mun utanrmn. væntanlega gerð grein fyrir því.
En til þessa hafa eftirtaldar ráðstafanir verið gerðar: Það hefur verið óskað eftir nánari upplýsingum frá sendiráðum um starfsmenn þeirra og þau störf sem hver þeirra hefur með höndum. Það hafa enn ekki borist svör.
Það hefur verið hafin endurskráning á bifreiðum sendiráða og sendiráðsstarfsmanna sem auðkenna mun bifreiðir þeirra betur, en til þess að hægt væri að gera slíkt þurftu áður að fara fram tæknilegar breytingar hjá Bifreiðaeftirliti, en því er fyrir skömmu lokið og það sem hér um ræðir hefur þegar verið hafist handa um.
Í þriðja lagi hefur verið leitað eftir upplýsingum hjá sendiráðum um beint húsnæði á þeirra vegum og hverjir nýta það. Jafnframt hefur verið beðið um að tilkynnt verði jafnóðum um breytingar á því. Við því hafa enn ekki borist þau svör sem óskað hefur verið eftir.
Ég er ekki með því að segja að svör hafi ekki borist að halda því fram að það sé nokkuð óeðlilegt við það nema síður sé. Ég efast ekki um að þegar utanrrn. spyr fær það svör sendiráðanna þegar þau telja að þau séu reiðubúin til þess að veita þær upplýsingar með þeim hætti sem beðið hefur verið um og að sjálfsögðu mun utanrrn. fylgja því eftir og, eins og ég gat um í upphafi míns máls, frekari athugun á því með hvaða hætti hægt er og skynsamlegast að framfylgja ályktun Alþingis og utanrmn. látin fylgjast með því eftir því sem málið vinnst.