09.04.1986
Neðri deild: 74. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3580 í B-deild Alþingistíðinda. (3261)

302. mál, veð

Frsm. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 745 þar sem fjh.- og viðskn. mælir einróma með samþykkt frv. til laga um veð. Efni þess er það að setja megi eldisfisk að veði og gildi það sama um hann og sjávarafurðir og aðrar landbúnaðarafurðir. Þessu mælir fjh.- og viðskn. einróma með. Fjarstaddur afgreiðslu málsins var hv. þm. Guðmundur Einarsson.