10.04.1986
Sameinað þing: 72. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3622 í B-deild Alþingistíðinda. (3303)

410. mál, kaupleiguíbúðir

Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir):

Herra forseti. Mér þótti miður að ekki kom fram í máli hæstv. félmrh. afstaða hans til þess máls sem hér er til umræðu og ég vil því beina því til hæstv. félmrh. að hann veiti þingheimi upplýsingar um hver sé afstaða hans til þessa máls, sem ég vænti að hann hafi kynnt sér í sinni ráðherratíð sem félmrh., því að þetta fyrirkomulag er ekki óþekkt í okkar nágrannalöndum og þessi till. hefur legið á borðum þm. í tvo daga.