10.04.1986
Efri deild: 73. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3635 í B-deild Alþingistíðinda. (3312)
415. mál, skiptaverðmæti og greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins
Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Aðeins örfá orð. Ég þakka þeim tveimur þm. sem voru á undan mér á mælendaskránni að hliðra til vegna þess að ég þarf að víkja um stund af fundi.
Hér er um viðamikið og flókið mál að ræða sem er búið að vinna utan þings þar sem þingflokkar hafa átt fulltrúa í nefnd sem hefur unnið þetta mál og hagsmunasamtökin sömuleiðis. Ég er ekki undir það búinn að fjalla um þetta mál efnislega á þessari stundu. Það hefur verið í höndum annarra í mínum flokki sem hafa unnið að því. En ein spurning aðeins er það sem vefst fyrir mér sem hæstv. ráðh. svarar væntanlega hér á eftir: Stendur öll ríkisstjórnin heil og óskipt að flutningi þessa frv.? Ég held að það sé nauðsynlegt að fá svar við því í umræðunum á eftir og skal ég ekki að þessu sinni hafa þessi orð fleiri.