10.04.1986
Neðri deild: 75. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3654 í B-deild Alþingistíðinda. (3340)

288. mál, kostnaðarhlutur útgerðar

Frsm. (Stefán Guðmundsson):

Herra forseti. Ég tala hér fyrir nál. um sérstakan kostnaðarhlut útgerðar. Þetta er mál sem komið er frá Ed. og þar var fullt samkomulag um það. Svo var einnig í sjútvn. Nd. en í nál. segir: „Nefndin ræddi frv. á fundi sínum 8. apríl. Nm. eru sammála um að mæla með samþykkt þess. Guðrún Agnarsdóttir sat fund nefndarinnar og er samþykk afgreiðslu málsins.“ Undir þetta nál. rita Stefán Guðmundsson, Garðar Sigurðsson, Gunnar G. Schram, Ingvar Gíslason, Pétur Sigurðsson og Halldór Blöndal.