14.04.1986
Neðri deild: 78. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3746 í B-deild Alþingistíðinda. (3423)
302. mál, veð
Frsm. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Fyrir liggur brtt. við þetta frv. á þskj. 834 frá Stefáni Valgeirssyni og Kjartani Jóhannssyni. Ég óskaði eftir því fyrr á fundinum að þessu máli yrði frestað um stund til þess að okkur í fjhn.- og viðskn. gæfist ráðrúm til að líta á þessa brtt. Ég hef borið mig saman við meðnefndarmenn mína, þá sem ég náði til, og okkur sýnist að þessar brtt. eigi rétt á sér. Ég lýsi stuðningi mínum við þær.