14.04.1986
Efri deild: 75. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3767 í B-deild Alþingistíðinda. (3463)
383. mál, siglingalög
Samgrh. (Matthías Bjarnason):
Virðulegi forseti. Með þessari breytingu á 230. gr. siglingalaga er verið að færa rannsókn sjóslysa í nútímalegra horf og stefnt að því að gera þessar rannsóknir mun betri og fyllri en áður hafa verið. Leitað hefur verið álits öryggismálanefndar sjómanna á þessu frv. og tekist mjög góð samvinna á milli ráðuneytisins og hennar um það. Í samgn. Nd., sem fjallaði um frv., var það samþykkt samhljóða að öðru leyti en því að flutt var till. frá minni hl. nefndarinnar um það að nm. væru fimm í stað þriggja og hlaut sú till. samþykki Nd.
Virðulegi forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til 2. umr. og hv. samgn.