16.04.1986
Efri deild: 77. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3937 í B-deild Alþingistíðinda. (3552)
366. mál, Innheimtustofnun sveitarfélaga
Jón Magnússon:
Virðulegi forseti. Ég hygg að það sé dálítið bráðræði að ætla að samþykkja frv. með þessum hætti án þess að taka fleiri atriði inn í myndina og þá sérstaklega það að varðandi innheimtu meðlagsskulda gilda ekki almenn fyrningarákvæði laga. Um þær skuldir sem dráttarvextir gilda um gilda stystu fyrningarfrestir í íslenskum lögum, en enginn fyrningarfrestur gildir á meðlagsskuldum. Af þeim ástæðum held ég að eðlilegt væri að bíða með að samþykkja frv. þangað til hefur verið búið til heilstætt frv. þar sem fyrningarfrestir á skuldum sem bera dráttarvexti eru sambærilegir eða stystu frestir sem um getur. Meðan það er ekki gert og frv. er svona get ég ekki greitt því atkvæði.