16.04.1986
Neðri deild: 81. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3975 í B-deild Alþingistíðinda. (3633)

128. mál, tollskrá o.fl.

Frsm. (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Mál þetta er einfalt í sniðum. Það voru gefin út brbl. s.l. haust um lækkun á tollum á bifreiðum m.a. Síðan hefur Alþingi afgreitt enn frekari lækkun á tollum á bifreiðum, en eftir stendur að tollur á snjósleðum var lækkaður skv. brbl. og þar eru þær eftirhreytur sem hér blasa við þm. Tollur á vörum í tollskrárnúmeri 87.02.11 í 1. gr. tollskrárinnar lækki í 70%, þ.e. snjósleðar. Nefndin varð sammála um að staðfesta þetta ákvæði brbl. og mæla með samþykkt frv.