17.04.1986
Neðri deild: 84. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4016 í B-deild Alþingistíðinda. (3702)

Um þingsköp

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Vegna umræðna sem hér hafa orðið um meðferð mála í dag fyrir hv. þingdeild vil ég taka það fram að við hv. 7. þm. Reykv. Guðmundur J. Guðmundsson höfum ákveðið að taka þátt í þessari umræðu. Við höfum athugasemdir við þetta mál að gera. Það mun taka nokkurn tíma og þess vegna getur þetta mál ekki fallið undir þá lýsingu sem kom fram áðan. Þetta segi ég hér eftir að hafa borið mig saman við hv. þm. Guðmund J. Guðmundsson.