19.04.1986
Neðri deild: 89. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4230 í B-deild Alþingistíðinda. (3917)

416. mál, Söfnunarsjóður Íslands

Frsm. (Ólafur G. Einarsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir áliti fjh.- og viðskn. um frv. til l. um yfirtöku ríkisviðskiptabanka á eignum og skuldum Söfnunarsjóðs Íslands. Þetta mál er komið frá hv. Ed. og nefndin mælir einróma með því að frv. verði samþykkt.