19.04.1986
Neðri deild: 90. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4241 í B-deild Alþingistíðinda. (3935)

401. mál, söluskattur

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Með tilliti til þeirra umræðna sem fram fóru í dag og þess að boðaður hefur verið fundur í fjh.- og viðskn. Nd. á morgun óska ég eftir því að fá að skoða þetta mál nánar milli umræðna og vil leita eftir því við hæstv. forseta hvort hann geti ekki fallist á að endanlegri afgreiðslu málsins hér verði frestað fram á mánudag.

Umr. frestað.