21.04.1986
Efri deild: 83. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4249 í B-deild Alþingistíðinda. (3949)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf, dags. 21. apríl 1986:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður landskjörinna þm. Alþfl., Magnús H. Magnússon stöðvarstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Eiður Guðnason,

5. landsk. þm."

Magnús H. Magnússon hefur áður tekið sæti á

Alþingi og því hefur kjörbréf hans verið rannsakað. Er hann nú boðinn velkominn til starfa.