21.04.1986
Efri deild: 86. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4279 í B-deild Alþingistíðinda. (4013)

368. mál, selveiðar við Ísland

Frsm. meiri hl. (Jón Kristjánsson):

Virðulegi forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég vil árétta það að ég ætlast að sjálfsögðu ekki til að þessi umræða sé leidd til lykta án þess að nál. komi fram. Það hefur aldrei hvarflað að mér að þessi umræða yrði leidd til lykta án þess að menn fengju að gera sér grein fyrir öllum atriðum málsins. Vil ég láta það koma fram hér úr ræðustól.