22.04.1986
Sameinað þing: 80. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4402 í B-deild Alþingistíðinda. (4153)

25. mál, málefni aldraðra

Frsm. (Gunnar G. Schram):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 1027 um till. til þál. um úrbætur í málefnum aldraðra. Þetta er 25. mál þingsins sem fyrir liggur hér í Sþ.

Félmn. Sþ. hefur fjallað um málið, yfirfarið umsagnir allmargra aðila um þetta mál, sem allar voru jákvæðar, og leggur nefndin til einróma að þessi till. verði samþykkt.

Undir þetta nál. rita Gunnar G. Schram, Jóhanna Sigurðardóttir, Guðrún Helgadóttir, Friðjón Þórðarson, Kristín S. Kvaran og Stefán Valgeirsson. Fjarverandi afgreiðslu málsins var Árni Johnsen.