22.04.1986
Sameinað þing: 80. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4428 í B-deild Alþingistíðinda. (4180)

11. mál, mat heimilisstarfa til starfsreynslu

Stefán Benediktsson:

Herra forseti. Sú till. sem hér um ræðir gerir að sönnu kannske ekki stórar breytingar á núverandi ástandi hvað fólki sem vinnur heimilisstörf viðvíkur, en ég gat ekki með neinu móti tekið undir þau viðhorf Kvennalistans að þeir sem gegna heimilisstörfum í landinu ættu að vera ríkisstarfsmenn. Þess vegna styð ég þessa till. og segi já.