22.04.1986
Sameinað þing: 80. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4429 í B-deild Alþingistíðinda. (4184)

235. mál, loðdýrarækt

Stefán Benediktsson:

Við sitjum á þessum væng 17-20 manns, allt eftir því hvaða menn eru að ganga inn og út úr þingsalnum, og ég tók eftir því sérstaklega núna að það voru þó nokkrir menn sem ekki greiddu atkvæði þannig að ég held að það hafi ekki verið talið rétt. (ÁJ: Það eru 22 hér nú.) Í augnablikinu, já. Þetta gildir reyndar líka um atkvæðagreiðslu áðan um tilvísun til ríkisstj. um till. um jarðgangagerð. Mér sýndist einhvern veginn ekki alveg ganga upp tölur talningarmannsins.