22.04.1986
Efri deild: 87. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4495 í B-deild Alþingistíðinda. (4254)

442. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Enn er einn á mælendaskrá, hv. 5. landsk. þm., en hann hefur boðist til að virða það samkomulag sem gert var um að reyna að ljúka þessu máli og koma því til nefndar á hálftíma og fresta sinni ræðu þar til við 2. umr. Er það nú þegið og þakkað fyrir þá tillitssemi.