23.04.1986
Efri deild: 88. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4495 í B-deild Alþingistíðinda. (4256)

205. mál, Seðlabanki Íslands

Frsm. meiri hl. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Virðulegi forseti. Hv. fjh.- og viðskn. hefur rætt þetta mál og leggur meiri hl. nefndarinnar til að frv. verði samþykkt eins og það kom frá Nd. að öðru leyti en því að samþykkt verði brtt. við 8. gr. sem viðskrh. hefur flutt. Við hv. þm. Sturla Böðvarsson höfum fyrirvara sem gerð er grein fyrir í nál.