23.04.1986
Efri deild: 89. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4516 í B-deild Alþingistíðinda. (4284)

423. mál, áfengislög

Helgi Seljan:

Virðulegi forseti. Hér er stjfrv. á ferð sem reyndar hefur tekið þeim breytingum að óþekkjanlegt er, aldrei þessu vant til hins verra af stjfrv. að vera. Þetta frv. fer til 2. umr. hér í fyrri deild og mér er sagt að það hafi komið krafa úr neðra um það að þetta yrði að fá afgreiðslu hér. Ekki veit ég hvort það er rétt. Hins vegar er ljóst að hér hafa verið samþykktar klúðurslegar og illframkvæmanlegar brtt. við upphaflega frv. sem gera það á þann veg að ég held að framkvæmd þess verði ómöguleg auk þess sem meginafstaðan, sem tekin er í þessum brtt., er röng. Ég segi því nei.