23.04.1986
Efri deild: 89. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4518 í B-deild Alþingistíðinda. (4289)

248. mál, póstlög

Magnús H. Magnússon:

Hæstv. forseti. Ég er mjög óánægður með þá breytingu sem hv. Nd. gerði á frv. eins og það kom frá þessari hv. deild. Ég tel að sjónarmið bankastjóra hafi fengið að ráða þar allt of miklu. Vegna tímaskorts og hve nauðsynlegt er að afgreiða málið nú sé ég mér samt ekki fært annað en að segja já.

Frv. afgr. sem lög frá Alþingi (þskj. 1105).