23.04.1986
Efri deild: 90. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4525 í B-deild Alþingistíðinda. (4305)
332. mál, áfengislög
Iðnrh. (Albert Guðmundsson):
Hæstv. forseti. Ég verð að lýsa furðu minni á þessu plaggi sem kallað er frv. til l. um breytingu á áfengislögum, nr. 82/1969: Hvað er Alþingi að afgreiða? Í 7. gr. stendur, með leyfi forseta: „Lög þessi öðlast gildi 1. mars 1987. Lögin skulu þó ekki koma til framkvæmda nema þau hafi áður hlotið samþykki með meiri hluta atkvæða við þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fari eigi síðar en 31. des. 1986.“ Alþingi er alls ekki að afgreiða nokkurn skapaðan hlut hérna. Lögin taka ekki gildi fyrr en að afstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Við erum því ekki að afgreiða nokkurn skapaðan hlut. Við erum bara að staðfesta þann ræfildóm sem ríkt hefur á Alþingi í þessu máli að menn hafa ekki þorað að segja annaðhvort já eða nei. Ég segi nei.