23.04.1986
Neðri deild: 98. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4553 í B-deild Alþingistíðinda. (4347)

448. mál, málefni Arnarflugs hf.

Frsm. meiri hl. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Í tilefni orða síðasta ræðumanns vil ég taka fram að hér er ekki verið að leggja til að flugvallarskattur eða önnur opinber gjöld verði felld niður, heldur er það skoðun meiri hl. að þessi gjöld verði að greiðast upp. Hins vegar setjum við inn heimild til fjmrh. að semja við fyrirtækið um greiðsluáætlun á þessum gjöldum.