23.04.1986
Neðri deild: 99. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4556 í B-deild Alþingistíðinda. (4361)
414. mál, Viðey í Kollafirði
Frsm. minni hl. (Jón Baldvin Hannibalsson):
Herra forseti. Það er fornt spakmæli að hver er sínum gjöfum líkastur. Sá sem gefur rústir er þá væntanlega sjálfur í rúst. Vegna ummæla hv. þm. þess efnis að einhver hafi snúist í afstöðu sinni, þá er það náttúrlega misskilningur. Till. var upphaflega um það að Alþingi sæi sóma sinn í því að verja til þess fjármunum að endurreisa stofuna í upphaflegri mynd þannig að hana mætti nýta m.a. til ráðstefnuhalds og veitingahalds í væntanlegum fólkvangi Reykjavíkur. Að ábendingu hv. 5. þm. Reykn., Geirs Gunnarssonar, var bætt inn í till. jafnframt að gerðar skyldu ákveðnar lendingarbætur í eynni. Við þetta var hreinlega ekki staðið. Hús hafa áfram grotnað niður, fjárveitingar voru ekki veittar, eftir sitja rústirnar og er svo hver sjálfur líkur sínum gjöfum.