23.04.1986
Efri deild: 92. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4575 í B-deild Alþingistíðinda. (4383)

442. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Frsm. minni hl. (Stefán Benediktsson):

Frú forseti. Ekki verður þetta efnisleg umræða heldur ætla ég eingöngu að gera grein fyrir villum sem læðst hafa inn í þskj. 1101. Við vorum reyndar búin að greiða hér í þingdeildinni atkvæði um 6., 7. og 8. tölulið og þar var allt með réttu, en við 9. tölulið er villa. Þar á að standa „við 11. gr.". Þetta er brtt. við 11. gr. Í 10. tölul. að standa að brtt. sé „við 12. gr.". Að öðru leyti er þskj. rétt að því ég best fæ séð.