23.04.1986
Efri deild: 92. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4575 í B-deild Alþingistíðinda. (4386)

448. mál, málefni Arnarflugs hf.

Frsm. meiri hl. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Hæstvirtur forseti. Fjh.- og viðskn. Ed. hefur fjallað um málið og klofnað um það. Meiri hl. leggur til að frv. verði samþykkt eins og það kom frá Nd. Umræður voru hér allítarlegar um málið fyrir skömmu. Ég hygg að þar hafi allt komið fram sem fram þarf að koma og eyði ekki af því fleiri orðum.