12.11.1985
Sameinað þing: 14. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 549 í B-deild Alþingistíðinda. (440)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Áður en lengra verður haldið verður nú snúið sér að viðfangsefnum sem ekki vannst tími til að sinna í byrjun fundarins.
Svohljóðandi bréf hefur borist:
„Reykjavík, l2. nóv. 1985:
Guðmundur J. Guðmundsson, 7. þm. Reykv. hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á leið til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Alþb. í Reykjavík, Ólafur Ragnar Grímsson, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Ingvar Gíslason,
forseti Nd."
Ólafur Ragnar Grímsson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa á ný.