23.04.1986
Efri deild: 93. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4579 í B-deild Alþingistíðinda. (4400)
368. mál, selveiðar við Ísland
Skúli Alexandersson:
Virðulegi forseti. Ég vil í fyrsta lagi taka fram í sambandi við það sem hv. þm. Karl Steinar sagði að það er ekki þinginu að kenna að þetta mál stendur á þann veg sem það stendur hér nú. Það er vegna þess að ríkisstj. sá ekki fyrir því að leggja málið fyrr fram. Það endurtekur sig ár eftir ár með mál eins og þetta sem er á réttan máta lýst af hæstv. sjútvrh. að er nauðsynjamál. Það er ekkert í neinni líkingu við það mál sem við vorum að afgreiða í dag sem kemur upp á stundinni. Það er búið að vera í biðstöðu og hæstv. ríkisstj. og hæstv. sjútvrh. sáu ekki ástæðu til að leggja það fram á hv. Alþingi fyrr en 24. mars í vetur, þ.e. daginn áður en hv. þm. fara í páskaleyfi. Geta þessir höfðingjar komið á síðustu stundu þings og óskað eftir því með tilvísun til góðra þátta þm. að nú komi þeirra dugnaður fram þegar þeir sjálfir hafa legið á málum og afgreitt þau á þann máta sem ég hef verið að lýsa? Ef nokkur hefur staðið sig illa og ef á nokkurn á að lýsa vantrausti er það á hæstv. ríkisstj. og sjútvrh. í sambandi við þetta mál. Ég tel að deildin sé að gera það hér nú með því að afgreiða þetta mál ekki.