23.04.1986
Neðri deild: 101. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4608 í B-deild Alþingistíðinda. (4435)

Starfslok neðri deildar

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Fyrir hönd þm. hér í Nd. vil ég þakka hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir í okkar garð. Ég flyt honum þakkir okkar fyrir samveruna í vetur, fyrir ljúfa og sanngjarna fundarstjórn og fyrir umburðarlyndi í okkar garð. Ég óska honum og fjölskyldu hans gleðilegs sumars og vænti þess að við fáum að hitta hann heilan að hausti.

Ég vil enn fremur nota tækifærið og þakka skrifstofustjóra og starfsliði Alþingis fyrir samveruna í vetur og fyrir mikil og vel unnin störf á þessu þingi. Og ég vona að við megum öll njóta góðs og gjöfuls sumars og hittast endurnærð að hausti.

Ég vil svo biðja hv. þingdeildarmenn að rísa úr sætum og taka með því undir orð mín. - [Deildarmenn risu úr sætum. ]