23.04.1986
Sameinað þing: 81. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4610 í B-deild Alþingistíðinda. (4439)

Þinglausnir

Ragnar Arnalds:

Fyrir hönd okkar alþingismanna vil ég þakka hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir okkur til handa. Ég þakka honum fyrir ágæta forustu um þingstörfin nú í vetur sem endranær og fyrir sanngjarna fundarstjórn. Ég óska honum og fjölskyldu hans gleðilegs sumars. Um leið nota ég tækifærið til að þakka skrifstofustjóra Alþingis og starfsfólki öllu fyrir ágæt störf í vetur. Ég leyfi mér að vænta þess að við megum öll hittast heil til starfa á komandi þingi. Ég vil biðja hv. alþm. að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. - [Þingmenn risu úr sætum.]