18.11.1985
Efri deild: 15. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 668 í B-deild Alþingistíðinda. (509)

105. mál, hitaveita Reykjavíkur

Forseti (Stefán Benediktsson):

Til upplýsingar fyrir hv. þdm. og þá einnig hv. síðasta ræðumann, 4. þm. Vestf., skal það upplýst að eftir þeim upplýsingum sem fyrir mér liggja er iðnrh. á leiðinni og ég á sterklega von á því að hann verði kominn áður en þessari umræðu lýkur. Í þeirri von hóf ég umræðuna.